Rán um hábjartan dag
Þegar Keðjan opnaði moggann í morgun blöstu við henni ógnvekjandi fréttir. Það hafði verið framið rán í Sparisjóði Kópavogs í gær. Í ljósi þess að Keðjan hyggst vinna í banka í sumar, er þetta grafalvarlegt mál. Keðjan gæti lent í þeirri aðstöðu að góna í byssuhlaup á meðan þjófar láta um greipar sópa. Nei samt ekki, hugsar Keðjan, svona kemur aldrei fyrir mig.
|